Palladio
Palladio; ljós drappaður litur, mildur, með örlitu hinti af gulum undirtón. Palladio hefur tilhneigingu til að virka drappaður með dröppuðum og/eða brúnleitum tónum og eilítið meira grá-beige með grárri tónum. Palladio er okkar vinsælasti litur frá upphafi og afar auðveldur að vinna með og hann aðlagast afar vel að flestum litum í umhverfinu. Palladio gefur frá sér náttúrulegt, ljóst og létt yfirbragð og tilvalin í flest rými. Látlaus og þægilegur litur sem valin er aftur og aftur.
*málningartækni, litir í umhverfi og birtustig í rými hafa alltaf áhrif á endanlega útkomu!
Kalkmálning
1 kg poki þekur um 16 fermetra í einni umferð eða um 8 fermetra í tveimur umferðum.
*Vinsamlegast athugið að raunverulegir litir geta verið breytilegir frá litum sem sýndir eru á skjánum þínum
Size guide
Palladio







