Skilmálar
Kalklitir/ Rozen ehf.
Kt. 540125-1390
VSK nr. félagsins er 155962
Heimilisfang: Bollagörðum 27 / 170 Seltjarnarnes
Tengiliðir: Fanný / fanny@kalklitir.is og Ágústa / agusta@kalklitir.is
SKILMÁLAR
Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum í vefverslun Kalklita. Við kaup á vörum í vefversluninni undirgengst viðskiptavinur skilmálana. Upplýsingar á vefsíðunni eru birtar með fyrirvara um bilanir, vírusa eða innsláttarvillur.
Afhending vöru
Afhendingartími vöru er 1 - 3 virkir dagar en gæti tekið lengri tíma á álagstímum.
Górilla Vöruhús hýsir allar vörur en Dropp sér um afhendingar á vörum.
Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp og Górilla Vöruhús gilda við afhendingu vörunnar.
Kalklitir áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða annarra mistaka.
Verð á vöru
Verð á síðunni eru í íslenskum krónum og með VSK.
Kalklitir áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara og afturkalla tilboð hvenær sem er.
Sendingarkostnaður - Höfuðborgarsvæðið
Á höfuðborgarsvæðinu eru vörur afhentar með Dropp.
Sendingarkostnaður fylgir verðskrá Górillu Vöruhús.
Einnig er í boði að sækja vörur í Górillu Vöruhús.
Sendingarkostnaður - Utan höfuðborgarsvæðis
Utan höfuðborgarsvæðisins eru vörur afhentar með Dropp.
Sendingarkostnaður fylgir verðskrá Górillu Vöruhús.
Skilafrestur
Viðskiptavinur hefur rétt á að skila vöru innan 14 daga frá því að viðskiptavinur veitti vörunni viðtöku og fá hana að fullu endurgreidda. Eingöngu er hægt að skila vöru sé hún óopin og í óskemmdum upprunalegum umbúðum. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja. Vinsamlegast tilkynnið skil með því að senda póst á netfangið shop@kalklitir.is áður en vöru er skilað.
Endurgreiðsla er framkvæmd ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru.
Hægt er að skila vöru með því að senda hana ásamt kvittun til:
Górilla Vöruhús
Korputorg
Blikastaðavegi 2-6
112 Reykjavík
Röng vara / Galli á vöru
Ef viðskiptavinur hefur fengið afhenta ranga eða gallaða vöru mun Kalklitir annað hvort, að vali viðskiptavinar, endurgreiða vöruna ásamt sendingarkostnaði eða láta viðskiptavin hafa nýja vöru án frekari kostnaðar eða endurgjalds.
Tilkynna skal Kalkliti um ranga eða gallaða vöru með því að senda okkur póst á netfangið shop@kalklitir.is
Notkun vöru
Vörur Kalklita skal nota í samræmi við lýsingu um viðeigandi notkun á vefsíðu Kalklita og umbúðum vörunnar. Vörur Kalklita eru eingöngu ætlaðar til notkunar innanhús. Notist ávallt við persónuhlífar eins og hlífðargleraugu, ef hætta er að vara komist í snertingu við augu, og hanska til að vernda húð. Ef vörur eru notaðar á annan hátt en samkvæmt notkunarleiðbeiningum verður Kalklitir ekki gert skaðabótaskylt vegna tjóns sem af því kann að leiða né er hægt að krefjast endurgreiðslu.
Breytingar á skilmálum og úrlausn deilumála
Um skilmála þessa gilda íslensk lög, þ.m.t. ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Kalklita áskilur sé rétt til þess að breyta skilmálum þessum. Breytingar taka gildi eftir útgáfu uppfærðra skilmála á vefsíðu Kalklita.